Upcoming Courses

& Ceremonies

viðburðir


ÆVINTÝRA HJARTAÐ - hefst 11. maí

Á námskeiðinu sækjum við innra barnið og lífskraftinn okkar með aðstoð náttúrunnar. Hér færð þú tækifæri, tól og leikvöll til að rækta þína tengingu við náttúruna og opna hjartað þitt með henni.

Ferðumst dýpra inn í hjartað okkar í gegnum ævintýri með stórkostlega og heilaga landinu okkar. Náttúran er öflugur spegill og kennari. Ertu tilbúinn að læra af henni og tileinka þér þína sönnu náttúru?

Hér verður lögð sérstök áhersla á hjartað og meðvitaða tengingu við náttúruna. Við ætlum að leika okkur, tengjast dýpra í gegnum cacao athöfnir í náttúrunni, vera í tímaleysi og dvelja í mysteríunni.